01/05/2024

Fréttavefurinn www.litlihjalli.it.is fær nýtt útlit

Opnuð hefur verið ný vefsíða fyrir fréttavefinn www.litlihjalli.it.is sem Jón Guðbjörn Guðjónsson veðurathugunarmaður í Litlu-Ávík stýrir. Gamli vefurinn var orðinn úr sér gengin, en hafði þó þjónað nokkuð vel til þessa tíma. Snerpa ehf á Ísafirði sá um að útbúa hinn nýja vef frá grunni og er vefumsjónarkerfið Snerpill notað til að uppfæra hann, en hægt er að bæta við undirsíðum ef þurfa þykir. Fréttavefurinn Litlihjalli flytur áfram fréttir úr Árneshreppi, sveitarfélagið, veðurfar og aðrar fréttir ef svo ber undir. Fólk er beðið að láta vefinn vita um efni sem gæti verið fréttnæmt og myndir á netfangið jonvedur@simnet.is.

Enn er eftir að uppfæra ýmislegt af gamla vefnum svo sem eldri fréttir og fleira, en myndasafn er mikið til komið inn og þar bætast reglulega við nýjar myndir. Þeir sem hafa styrkt vefsíðuna www.litlihjalli.it.is eru
Sparisjóður Strandamanna með framlagi 30.000 kr, Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra með ráðherrastyrk 60.000 kr og ekki má gleyma Mats Wibe Lund sem skaffaði mynd á haus síðunnar. Þá vill Jón Guðbjörn þakka Ágústi Atlasyni hjá Snerpu ehf fyrir frábært samstarf og þolinmæði við gerð vefjarins.