29/04/2024

Ferðablað Arnkötlu 2008 er komið út

Á ferð um Strandir og ReykhólasveitFerðablaðið fyrir sumarið 2008, Á ferð um Strandir og Reykhólasveit kom út á Sumardaginn fyrsta. Það er Arnkatla 2008 sem stendur fyrir útgáfunni í samstarfi við Markaðsstofu Vestfjarða. Ferðablaðið sem er tólf blaðsíður er prentað í 20 þúsund eintökum verður dreift á upplýsingamiðstöðvar um allt land. Einnig mun það liggja frammi á öllum viðkomustöðum ferðamanna á svæðinu. Í ferðablaðinu er hægt að kynnast því helsta sem er að gerast í ferðaþjónustu á Ströndum og í Reykhólasveit. Blaðinu hefur verið dreift inn á öll heimili á svæðinu. Blaðið er einnig hægt að nálgast í tölvutæku formi á heimasíðu Upplýsingamiðstöðvar ferðamála á Hólmavík á slóðinni www.holmavik.is/info.

Ferðaþjónustuaðilar eru hvattir til að að dreifa blaðinu til gesta sinna og halda því vel á lofti. Upplag af því er hægt að nálgast hjá Sigurði Atlasyni – arnkatla2008@strandir.saudfjarsetur.is – eða á Upplýsingamiðstöðinni á Hólmavík eftir að hún opnar í vor.