29/04/2024

Draugasaga sýnd í Sævangi og á Act Alone

Draugasaga, Leikfélag Hólmavíkur

Einleikurinn Draugasaga sem Leikfélag Hólmavíkur setti upp síðastliðið haust verður nú sýndur einu sinni enn og líklega í síðasta skipti á Sauðfjársetrinu í Sævangi við Steingrímsfjörð, laugardaginn 13. ágúst kl. 22. Leikritið var sérstaklega skrifað fyrir sýningar í Sævangi og tekur sýningin klukkustund. Áhorfendur kynnast húsdraugnum sem heldur til í Sævangi og hann segir sögur af öðrum draugum af Ströndum sem hann hefur orðið samferða í gegnum tíðina. Hægt og sígandi kemur hans eigin ógæfusaga fram í skímuna. Leikritið er dálítið óhugnanlegt og ekki við hæfi ungra barna. Þessi sýning á leikritinu kemur í framhaldi af því að stykkið verður sýnt á einleikjahátíðinni Act Alone þetta árið, nánar tiltekið fimmtudagskvöldið 11. ágúst kl. 22 í félagsheimilinu á Suðureyri.

Það er Arnór Jónsson frá Kirkjubóli á Ströndum sem leikur drauginn í einleiknum, en faðir hans og þjóðfræðingurinn Jón Jónsson er höfundur verksins og leikstjóri. Miðapantanir fyrir sýninguna í Sævangi eru í s. 693-3474 (Ester) og aðgangseyrir 1.800.-