27/04/2024

Dalir og Hólar opna á laugardag

Eitt listaverkið er við Nýp á SkarðsströndÁ vefnum www.reykholar.is er sagt frá því að nú um verslunarmannahelgina verður opnuð myndlistarsýning undir heitinu Dalir og Hólar. Hér eru á ferðinni átta myndlistarmenn sem sýna á nokkrum stöðum í Dalasýslu og Reykhólahreppi samtímis. Sýningarstaðirnir eru af ýmsum toga, m.a. húsarústir, eyðibýli, gamla kaupfélagið í Króksfjarðarnesi. Kveikjan að framtakinu er löngun listamannanna til að sækja út fyrir hefðbundna sýningarsali, vinna út frá náttúru og menningu landsins, efna til samstarfs við heimamenn og draga sýningargesti í ferðalag um þetta fallega svæði og leiða þá um sveitir Dalasýslu og Reykhólahrepps.

Listamennirnir átta eru Eric Hattan, Hildigunnur Birgisdóttir, Hreinn Friðfinnsson, Kristinn G. Harðarson, Magnús Pálsson, Sigurður Guðjónsson, Sólveig Aðalsteinsdóttir og Þóra Sigurðardóttir. Sýningin hefst á laugardaginn 2. ágúst kl. 14 og stendur fram á sunnudag 10. ágúst. Aðgangur að verkunum er frjáls allan tímann, nema að þeim sem verða í Króksfjarðarnesi. Þar verður einungis opið tvær næstu helgar (laugardag og sunnudag) frá klukkan 14:00-18:00. Bæklingur með korti af svæðinu og sýningarstöðum liggur frammi á bensínstöðvum og verslunarstöðum í Dölum og Reykhólahreppi.

Nánari upplýsingar um listafólkið og staðina og annað sem sýningunni viðkemur er að finna á vefsíðunni http://www.kgh.is/dalirogholar. Sýningin er styrkt af Menningarráði Vestfjarða og Menningarráði Vesturlands.

Þessi frétt er afrituð lítið breytt af vefnum www.reykholar.is.