25/04/2024

Briddsmót haldið í Árnesi

Briddsmót var haldið í Félagsheimilinu Árnesi í Trékyllisvík sunnudaginn 24. apríl. Ellefu félagar úr Briddsfélagi  Hólmavíkur kom hingað norður í blíðskapaveðri. Nú átti að kenna búunum bridds eins og það er spilað á Hólmavík og víðar. Einhverjir kviðu fyrir þessari heimsókn meðan sumir vildu ekkert með hana hafa en aðrir létu sig hafa það.


Spilaður var tvímenningur og spiluðu átta pör. Úrslit fóru þannig að í fyrsta sæti urðu Guðbrandur Björnsson og Kristján Albertsson með 106 stig, Ingimundur Pálsson og Karl Björnsson með 95 stig, Björn Torfason og Guðmundur Þorsteinsson með 94 stig, Björn Pálsson og Hannibal með 85 stig, Maríus Kárason og Hrólfur Guðmundsson með 84 stig, Áskell Benediktsson og Lýður Magnússon með 75 stig, Jón Stefánsson og Már Ólafsson með 72 stig, Gunnsteinn Gíslason og Ágúst Gíslason með 55 stig. Félagarnir færðu heimamönnum spilabakka og aðrar gagnlegar upplýsingar um keppnisbridge. Þótti þetta framtak takast vel og færum við þeim bestu þakkir fyrir komuna.

.
Þátttakendur á briddsmótinu