28/04/2024

Breyting á reiðnámskeiði

Frá reiðnámskeiði 2005Vegna Sparisjóðsmótsins í Borgarnesi hefur fyrirkomulagi á reiðnámskeiði sem fara átti fram við Víðidalsá verið breytt. Í stað eins námskeiðs verða nú haldin tvö námskeið sem taka hvort um sig fjóra daga. Fyrra námskeiðið byrjar fimmtudaginn 22. júní og stendur yfir til sunnudags 25. júní. Seinna námskeiðið verður frá mánudeginum 26. júní til fimmtudagsins 29. júní. Með þessari breytingu gefst þeim sem fara í Borgarnes færi á að koma á seinna námskeiðið. Hvort námskeið kostar kr. 4.000.- Skráning og upplýsingar í síma 864-3246 hjá Heiðdísi.