26/04/2024

Bílveltur og hraðakstur

Í yfirliti um verkefni lögreglu á Vestfjörðum í liðinni viku kemur fram að fjögur umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu, þrjár bílveltur og eitt minniháttar óhapp á Ísafirði. Tvær bílveltur urðu á Örlygshafnarvegi, á svokölluðu Hafnarfjalli á leið út á Látrabjarg, mánudag og þriðjudag. Um var að ræða erlenda ökumenn og ekki urðu slys á fólki að ræða. Báðir bílarnir óökuhæfir og fluttir af vettvangi með krana. Síðastliðinn þriðjudag varð bílvelta á Innstrandavegi við Kollsá í Hrútafirði. Þar voru einnig erlendir ferðamenn á ferð og voru ökumaður og farþegi fluttir með sjúkrabíl á Heilsugæslustöðina á Hvammstanga til skoðunar, reyndust þeir lítið slasaðir. Bifreiðin óökuhæf. Á þessum stöðum er lausamöl á vegi og ökumenn ekki vanir að aka við þær aðstæður.

Þrír ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í vikunni, einn í nágrenni við Hólmavík og tveir við Ísafjörð, sá sem hraðast ók, var mældur á 128 km/klst, þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km/klst.

Ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglu um liðna helgi.