29/04/2024

Bangsadagur á bókasafninu


Föstudaginn 16. nóvember býður Héraðsbókasafn Strandasýslu á Hólmavík upp á hina árlegu bangsastund á bókasafninu. Bangsastundin hefst klukkan 16:30 og stendur í um klukkustund. Andrea Kristín Jónsdóttir sveitarstjóri mun lesa bangsasögu fyrir gesti. Síðan verður boðið upp á djús og bangsaköku og efnt til samkeppni um nafn á nýja bókasafnsbangsanum. Ungir sem aldnir eru minntir á að bjóða bangsa með á bókasafnið af þessu tilefni.