29/04/2024

Arnar S. Jónsson hefur umsjón með Hamingjudögum

Nýráðinn tómstundafulltrúi Strandabyggðar, Arnar Snæberg Jónsson, mun hafa umsjón með bæjarhátíðinni Hamingjudögum á Hólmavík þetta árið en hún verður haldin dagana 1.-3. júlí. Sér hann um undirbúning og skipulagningu í nánu samráði við Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd Strandabyggðar. Arnar hefur þegar hafist handa við undirbúninginn og allar hugmyndir íbúa og velunnara hátíðarinnar eru vel þegnar. Netfangið er tomstundafulltrui@strandabyggd.is og símanúmer 894-1941. Vefsíða Hamingjudaga er á slóðinni www.strandabyggd.is/hamingjudagar.