26/04/2024

Annað bindi Islandia að koma út

Annað bindi í þriggja bóka teiknimyndaseríunni Islandia eftir franska höfundinn Marc Védrines kemur út í Frakklandi í næsta mánuði en eins og kunnugt er þá sækir höfundurinn innblástur í Galdrasýningu á Ströndum. Aðalsöguhetjan er franskur piltur á táningsaldri, Jacques að nafni, sem ræður sig um borð í franskt fiskiskip sem heldur til veiða við strendur Íslands á 17. öld. Í fyrsta bindinu sem kom út í maí á síðasta ári er fylgst með ferðalagi piltsins sem lagði upp í hættuför frá Frakklandi til Íslands til að skilja dularfullar sýnir sem höfðu birst honum frá barnæsku. Hann uppgötvaði í leit sinni að það er dularfullt samhengi milli drauma hans og íslenskra galdra og hann dróst inn í atburðarás galdraofsókna sem áttu sér stað í landinu á þeim tíma og í lok fyrra bindis var Jacques hinn ungi orðinn eftirlýstur af íslenskum yfirvöldum vegna galdraáburðar.

Í öðru bindinu sem heitir Islandia – Les fjords de l’ouest og gæti útlagst sem Ísland – Vestfirðir, er fylgst með dularfullri og ævintýralegri ferð hans um Strandir, Vestfirði og víðar um landið.

Á ferð sinni kynnist hann íslenskum útlaga sem einnig er á flótta undan yfirvöldum vegna galdraáburðar og þeir taka höndum saman til að bjarga eigin skinni og skilja betur bernskusýnir Jacques. Hluti sögunnar fer fram í Kotbýli kuklarans þar sem Stína býr ásamt föður sínum, en þau skutu skjólshúsi yfir hann í fyrra bindinu. Faðir Stínu er ákærður fyrir heiðinn galdur í þessu bindi og brenndur á Þingvöllum. Aðferðin við brennuna á Þingvöllum minnir á aftöku Lassa Diðrikssonar sem var brenndur árið 1675 að „saklitlu að sumir héldu", en illa gekk að brenna Lassa vegna rigningar og slokknaði eldurinn þrisvar.

Kotbýli kuklarans kemur mikið við sögu í Islandia - þessi mynd er úr fyrsta bindiHöfundurinn, Marc Védrines, kom í heimsókn á Galdrasýningu á Ströndum fyrir nokkrum árum og heillaðist svo af viðfangsefninu að hann ákvað að næsta myndasería sín skyldi fjalla um galdra á Íslandi. Sem stendur hefur teiknimyndaserían einungis verið gefin út á frönsku en vonir standa til að hún komi einnig út á Íslandi, en Strandagaldur mun vinna að því að fá hana einnig útgefna á íslensku. Marc teiknar söguna sjálfur og semur hana. Útgefandi teiknimyndabókaflokksins Islandia í Frakklandi er Dargaud sem er stærsta forlag teiknimyndasaga í Frakklandi og eitt það stærsta í heimi. Hér að neðan er að sjá nokkrar teikningar úr bókinni en þriðja og síðasta bindið kemur út á næsta ári.

Marc Vedrines

galdrasyning/580-islandia-tome2-brenna2.jpg