04/05/2024

Aðalfundi Leikfélags Hólmavíkur frestað

LeikæfingÍ fréttatilkynningu frá Leikfélagi Hólmavíkur kemur fram að aðalfundi félagsins sem halda átti á morgun hefur verið frestað til sunnudagsins 17. febrúar og verður hann þá haldinn kl. 16:00 í félagsheimilinu á Hólmavík. Á aðalfundi eru yfirleitt venjuleg aðalfundarstörf á dagskránni, nammiát og margvíslegt spjall um liðna tíð og fyrirhuguð framtíðarafrek. Vefur Leikfélagsins er á slóðinni www.holmavik.is/leikfelag.