26/04/2024

Að grína í samfélagið

Í tengslum við sýningu Hafnarborgar – menningar- og listamiðstöðvar í Hafnarfirði –  sem ber yfirskriftina Að drekka mjólk og elta fólk stendur Þjóðfræðistofa fyrir málþingi um húmor sem tæki í
samfélagsrýni og valdabaráttu þjóðfélagshópa. Þjóðfræðistofa hefur áður staðið tvisvar sinnum fyrir húmorsþingum á Hólmavík, en nú fer málþingið fram í Hafnarborg að Strandgötu 34 í Hafnarfirði 25. september kl. 15:00-16:30. Nánari upplýsingar má fá á vefsíðum Þjóðfræðistofu og Hafnarborgar – www.icef.is og www.hafnarborg.is

Þarna munu fræði- og listamenn stíga á stokk og varpa ljósi á hinar ýmsu birtingarmyndir húmors í menningar- og samfélagslegu samhengi. Á málþinginu verður grínt í hin ýmsu form húmors svo sem uppistand, háðsádeilur og leikræna íroníu. Þá verða tekin dæmi úr menningar- og hversdagslífi
sem liggja á mörkum lista og leikhúss.

Á meðal dagskárliða eru:

Ólöf K. Sigurðardóttir, forstöðumaður Hafnarborgar: Ávarp
Kristinn Schram, forstöðumaður Þjóðfræðistofu: Húmor, vald og samfélag
Kristín Dagmar Jóhannesdóttir, sýningarstjóri: Efnistök og stærra samhengi sýningarinnar “Að elta fólk og drekka mjólk”
Andrea Elín Vilhjálmsdóttir: Snisklófanðrolluf ruðúrt: Nröb riryf ikke (lesist aftanfrá)
Sigurjón Baldur Hafsteinsson, lektor við Háskóla Íslands: Íslensk menning = tippamenning?
Eva Þórdís Ebenezersdóttir: 3 fætur og 15 tær: húmor sem vörn og vopn í lífi og baráttu fatlaðs fólks.
Terry Gunnell, dósent við Háskóla Íslands: Uppistand og sagnaflutningur
Ilmur Stefánsdóttir, myndlistarmaður: Common Nonsense

Gjörningar og uppákomur með Ilmi Stefánsdóttur, Möllu mengi og fleirum. Sýnt úr og sagt frá heimildamyndinni Uppistandsstelpur sem frumsýnd verður um kvöldið. Pallborðsumræður með þátttakendum ásamt Óttarri Proppe borgarfulltrúa Besta flokksins.