30/04/2024

Ingibjörg Sólrún á Hólmavík

Ingibjörg Sólrún GísladóttirSamfylkingin boðar til opins  fundar í Rósubúð (Björgunarsveitarhúsinu), sunnudaginn 10. apríl klukkan 18:00.  Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Anna Kristín Gunnarsdóttir, þingmaður mæta á fundinn og ræða stöðuna í pólitíkinni og sérstaklega formannskjör í Samfylkingunni. Fundurinn er opinn öllu áhugafólki um stjórnmál og er félagshyggjufólk sérstaklega hvatt til að mæta.  Í framhaldi af fundinum gefst tækifæri til að ganga í Samfylkingarfélag Strandasýslu og öðlast þar með atkvæðisrétt í formannskjöri.