30/04/2024

Vinnuþing Vatnavina Vestfjarða í Laugarhóli

VatnavinirNæstkomandi mánudag og þriðjudag, 16. og 17. nóv., verður haldin ráðstefna á Hótel Laugarhóli í Bjarnarfirði á vegum Vatnavina Vestfjarða. Ráðstefnan er nokkurs konar vinnuþing þar sem Vatnavinir munu kynna frumlegar hugmyndir og skissur af baðstöðum Vatnavina Vestfjarða sem og annað frumkvöðlastarf. Á þingið mætir breiður hópur fulltrúa fyrirtækja í ferðaþjónustu og sérfræðingar tengdir heilbrigðum lífsstíl. Ráðstefnan er opin öllum, en nauðsynlegt er að skrá sig fyrir lok fimmtudagsins 12. nóv. Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um dagskrá og skráningu, en mörg áhugaverð erindi verða flutt eins og sjá má.

Erindi á Vinnuþingi Vatnavina Vestfjarða:

Vatnavinir Vestfjarða, Sigrún Birgisdóttir og Viktoría Rán Ólafsdóttir
Hughrifagreining fyrir markaðsetningu: Sköpun sérstöðu, Sigrún Birgisdóttir og Sigurður Þorsteinsson
Opnun Vefsíðu www.vatnavinir.is, María Sjöfn Dupuis Davíðsdóttir
Baðstaðir Vatnavina Vestfjarða: Kynning á hugmyndavinnu, Olga Guðrún Sigfúsdóttir og Sigrún Birgisdóttir
Óhefðbundnar lækningar við baðstaði Vatnavina, Náttúrulækningafélag Íslands
Jurtir og vatn, Aðalbjörg Þorsteinsdóttir, Villimey
Þari, vatn og lækningamáttur, Sólrún Sverrisdóttir, Reykhólum
Ferðaþjónustan á Klængshóli í Skíðadal: Náttúra og heilsa, Anna Dóra Hermannsdóttir
Þemaferðir á Vestfjörðum: Arnlín Óladóttir og Magnús Rafnsson, Þemaferðir ehf
Gerð og markaðsetning ferða, Bertrand Jouanne,  Ferðakompaníið
Sjálfboðaliðasamtökin SEEDS, Hildur Björk Pálsdóttir
Námskeið og ferðir í tengslum við baðstaði Vestfjarða, Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir
Ferðamálastofa og Vatnavinir Vestfjarða, Ólöf Ýrr Atladóttir, Ferðamálastjóri 
Eiginleikar vatns á Vestfjörðum og  nýjar leiðir við hreinsun vatns, Sandra Grettisdóttir, HA
Útflutningsráð og Vatnavinir Vestfjarða, Hermann Ottósson, forstöðumaður
Markaðstofa Vestfjarða og Vatnavinir Vestfjarða, Jón Páll Hreinsson
Vatnavextir og tekjumyndun, Anna G. Sverrisdóttir
Ímyndarsköpun, Sigurður Þorsteinsson  og Anna G. Sverrisdóttir

Ráðstefnugestir greiða ekkert þátttökugjald, en mikilvægt er að gestir bóki eftirfarandi samkvæmt þátttöku, annan eða báða dagana.

Dagur 1,  án gistingu  – Hádegismatur, kaffi og kvöldverður             4700 kr.
Dagur 2, án gistingu – Hádegismatur og miðdegiskaffi                    2000 kr.  

Gisting á Hótel Laugarhóli með morgunverði:
Einstaklingur (með baði)                               7000 kr. á mann
Tveir í herb     (með baði)                               5000 kr. á mann
Einstaklingur (án baðs)                                 6000 kr. á mann
Tveir í herb     (án baðs)                                 4000 kr. á mann

Nánari upplýsingar má nálgast hjá Viktoríu Rán í síma 451 0077 / gsm 691 4131.  Skráningar má hringja inn eða senda í tölvuposti á viktoria@atvest.is. Tilkynna þarf forföll sem fyrst.