30/04/2024

Súpufundur á Kaffi Norðurfirði mánudag

Mánudaginn 29. júní kl. 12:00 verður haldinn súpufundur á Kaffi Norðurfirði í Árneshreppi. Tilefnið er að Þróunarsetrið á Hólmavík í samstarfi við Arnkötlu 2008 mun efna til atvinnu- og menningarsýningar á Ströndum 29. ágúst 2009.  Sýningin verður haldin í félagsheimilinu á Hólmavík og er markmiðið tvíþætt: Að efla tengsl milli ólíkra svæða og athafna á Ströndum og að efla ímynd Stranda út á við. Árneshreppsbúar og allir velunnarar svæðisins eru hvattir til að mæta á súpufund í Kaffi Norðurfirði, mánudaginn 29. júní 2009 þar sem sýningin verður kynnt nánar.  

Aðrir súpufundir á Ströndum verða sem hér segir:

            -Þriðjudaginn 30. júní 2009:  Malarkaffi, Drangsnesi
            -Miðvikudaginn 1. júlí 2009: Café Riis, Hólmavík
            -Fimmtudaginn 2. júlí 2009:  Grunnskólinn á Borðeyri

Vaxtarsamningur Vestfjarða og Menningarráð Vestfjarða eru styrktaraðilar að sýningunni. Fyrirtækið AssA, þekking & þjálfun í Trékyllisvík sér um framkvæmd hennar og er hægt að nálgast frekari upplýsingar hjá Ingibjörgu Valgeirsdóttur í síma 451 4025 eða senda fyrirspurn og þátttökuskráningu í netfangið ingibjorg@assaisland.is.