28/03/2024

Súpufundur á Malarkaffi á Drangsnesi í hádeginu á þriðjudegi

MalarkaffiÞróunarsetrið á Hólmavík í samstarfi við Arnkötlu 2008 mun efna til atvinnu- og menningarsýningar á Ströndum 29. ágúst 2009. Sýningin verður haldin í félagsheimilinu á Hólmavík og er markmiðið tvíþætt:
-Efla tengsl milli ólíkra svæða og athafna á Ströndum
-Efla ímynd Stranda út á við
Íbúar Kaldrananeshrepps og allir velunnarar svæðisins eru hvattir til að mæta á súpufund í Malarkaffi, Á morgun þriðjudaginn 30. júní 2009 þar sem sýningin verður kynnt nánar. Fyrsti súpufundurinn í þessari viku var haldinn á Kaffi Norðurfirði í dag og verða síðan haldnir sunnar í sýslunni næstu daga.

Næstu súpufundir á Ströndum verða sem hér segir: 
 
-Þriðjudaginn 30. júní 2009: Malarkaffi á Drangsnesi           
-Miðvikudaginn 1. júlí 2009: Café Riis, Hólmavík
-Fimmtudaginn 2. júlí 2009:  Grunnskólinn á Borðeyri
Súpufundirnir verða haldnir með sama sniði og á Café Riis s.l. vetur.  Þeir hefjast allir kl. 12:00 og gefst gestum kostur á að kaupa hressandi hádegissúpu.
Vaxtarsamningur Vestfjarða og Menningarráð Vestfjarða eru styrktaraðilar að sýningunni.
 
Fyrirtækið AssA, þekking & þjálfun í Trékyllisvík sér um framkvæmd hennar og er hægt að nálgast frekari upplýsingar hjá Ingibjörgu Valgeirsdóttur í síma 451 4025 eða senda fyrirspurn og þátttökuskráningu í netfangið ingibjorg@assaisland.is