28/04/2024

Grjóthleðslunámskeið á Reykjum

Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna stendur fyrir grjóthleðslunámskeiði sunnudaginn 29. október næstkomandi. Þetta kemur fram á Huni.is. Þar segir ennfremur: „Drangabræðurnir og grjóthleðslumeistararnir Benjamín og Guðjón Kristinssynir stjórna námskeiðinu. Þeir hafa starfað við grjóthleðslu um árabil, þekkja vel til helstu aðferða og eru hleðsluverk eftir þá að finna um land allt. Benjamín og Guðjón eru sagnamenn miklir, segja ekki sögur nema þær séu stórlega ýktar eða verulega bættar. Því á ekki eftir að skorta skemmti- eða umræðuefni á námskeiðinu.“

„Námskeiðið verður haldið á Reykjum í Hrútafirði og er haldið í tengslum við varðveislu fallbyssustæðis frá tímum hernámsins sem er í fjörunni við hlið safnsins. Hlaðinn verður frístandandi, boginn skjólveggur vestan við byggðasafnið við hlið fallbyssustæðisins. Ætlunin er að búa til fallegt útivistarsvæði og miðla grjóthleðslukunnáttu til áhugasamra. Námskeiðið, sem hefst klukkan 11:00, er án endurgjalds og létt hressing í boði á byggðasafninu fyrir þátttakendur.

Sólveig H. Benjamínsdóttir veitir upplýsingar og tekur á móti skráningu á netfangið solveig@hunathing.is eða í síma 771-4961.“