25/04/2024

Fundað um svæðisskipulag – Hólmavík 12. okt

Hér njótum við hlunninda er lykilsetning í tillögu að sameiginlegu svæðisskipulagi Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar sem birt hefur verið á verkefnisvefnum www.samtakamattur.is. Í tillögunni er sett fram sameiginleg stefna sveitarfélaganna um eflingu atvinnulífs og byggðar með áherslu á nýtingu sérkenna og auðlinda svæðisins. Svæðisskipulagstillagan er kynnt á opnum fundum í sveitarfélögunum þessa dagana. Fundur á Hólmavík verður haldinn í Félagsheimilinu fimmtudaginn 12. október, kl. 17:00-18:30. Íbúar og aðrir hagsmunaaðilar eru hvattir til að mæta. Hægt er að senda inn ábendingar við tillöguna til 28. október 2017. Þær skulu stílaðar á: Svæðisskipulagsnefnd Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar, b.t. formanns – Ingibjargar Emilsdóttur, skrifstofu Strandabyggðar, Höfðagötu 3, 510 Hólmavík. Einnig má senda ábendingar með tölvupósti til ingaemils@strandabyggd.is.