29/04/2024

1000 ára kirkja reist í Trékyllisvík?

Rúmlega 150 ára gömul kirkja í TrékyllisvíkÁ mbl.is er frá því sagt að Hrafn Jökulsson rithöfundur sem nú er búsettur í Trékyllisvík vill að reist verði þriðja kirkjan í Árneshreppi og hefur borið það erindi upp við biskup Íslands. Hrafn segir allar líkur á að Finnbogi rammi hafi búið þar sem Bær í Trékyllisvík er nú, en þar er forn og friðaður grafreitur. Finnbogi er sagður hafa reist kirkju við kristnitökuna árið 1000. „Nú viljum við reisa kirkju í þeim stíl sem var á fyrstu kirkjum í landinu,“ segir Hrafn í samtali sem birtist í Morgunblaðinu í dag: „Og þegar búið verður að reisa Finnbogakirkju á nýjan leik muntu geta komið í Trékyllisvík og fengið nokkurn veginn samfellda kirkjusögu íslenskrar alþýðu við ysta haf í þúsund ár.“