26/12/2024

Verkalýðsfélag Vestfirðinga ályktar um vegamál

Stjórn Verkalýðsfélag Vestfirðinga samþykkti á stjórnarfundi sínum á Drangsnesi nýlega að mótmæla harðlega frestunum á vegaframkvæmdum sem boðaðar hafa verið. Telur stjórnin að úrbætur á vestfirskum vegum hafi setið á hakanum áratugum saman og malarvegir þar standist á engan hátt þær kröfur sem gera má til nútíma þjóðvega. Bent er á að góðar samgöngur eru lífæð hverrar byggðar. Ályktunin í heild sinni er birt hér að neðan:

Stjórnarfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga, haldinn á Drangsnesi 12. ágúst 2006, mótmælir harðlega frestunum á vegaframkvæmdum sem boðaðar hafa verið. Úrbætur á vegum sem liggja um Vestfirði hafa setið á hakanum í áratugi og þeir eru í dag með þeim allra lélegustu sem finnast í þróuðum löndum og er þá langt til jafnað.

Fundarmenn skora á þingmenn kjördæmisins að sjá til þess að Vestfirðingar sem aðrir landsmenn geti ekið á vegum sem tíðkast í þróuðum löndum. Malarvegir á Vestfjörðum standast ekki þær kröfur sem gerðar eru til nútíma þjóðvega og uppfylltar hafa verið hjá öðrum. Góðar samgöngur eru lífæð hverrar byggðar, bæði hvað varðar atvinnu og menningu, sem og öryggi og þróun byggðar.

Það eru engin rök fyrir frestun t.d. á þverun Mjóafjarðar að útboðsgögn séu ekki enn tilbúin. Samgönguráðherra og þingmenn okkar ættu frekar að svara því hvers vegna útboðsgögnin eru ekki á borðinu, því áratugur er síðan ákveðið var að fara í verkið.

Fundurinn vill taka fram að svipað ástand er einnig á norðausturhorni landsins.