22/12/2024

Vegaþjónn og tófubani

Í viðtali sem fréttaritari strandir.saudfjarsetur.is átti við Hannes Hilmarsson á Kolbeinsá, sem þjónustar veginn í Bæjarhreppi og víðar, kemur fram að ekki hefur liðið einn einasti dagur það sem af er ársins sem hann hefur ekki þurft að þjónusta veginn á einhvern hátt. Mikill ófriður hefur verið í tíðarfarinu, sífelld úrkoma og skafrenningur og svo á milli frostleysa sem hefur skapað stórhættulega hálku á vegum.

En þetta er ekki það eina sem Hannes er að fást við þessa dagana, því 17 tófur hafa legið í valnum af hans völdum það sem af er vetri og 10 af þeim frá áramótum. Hann hefur skotið þær allar af veginum. Hannes sagðist hafa farið vítt og breitt um á vélsleða og sagði töluverðan snjó kominn til fjalla og að lokum vildi hann vara sleðamenn sérstaklega við þeim hættum sem stafað geta af girðingum sem eru víða að hluta til á kafi í snjó og eru stórhættulegar ef ekið er undir strengi á vélsleða. Telar Hannes þörf á að búa sleðana svokölluðum vírusvörnum.

Ljósm. Sveinn Karlsson