16/04/2024

Óhapp við Kálfanes

Snjóbíll Björgunarsveitarinnar Dagrenningar á leið á vettvangi slyssinsBjörgunarsveitin Dagrenning á Hólmavík var kölluð út upp úr kl. 16:00 í dag eftir að drengur sem var á ferð með föður sínum á vélsleða við Kálfanes, ofan við flugvöllinn á Hólmavík, slasaðist eftir að vélsleði þeirra fór fram af hengju. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Landsbjargar. Blessunarlega virðast meiðsl drengsins vera minni háttar samkvæmt tilkynningunni.

Í fyrstu var óttast að drengurinn væri alvarlega slasaður og kallaði faðirinn strax eftir aðstoð. Fóru björgunarsveitarmenn frá Hólmavík á vélsleðum með lækni á vettvang. Eftir fyrstu skoðun kom í ljós að svo virðist að betur hafi farið en haldið var í fyrstu og var drengurinn fluttur í framhaldinu til nánari skoðunar á Heilbrigðisstofnun Hólmavíkur þangað sem hann var kominn 45 mínútum eftir óhappið.

Snjóbíll Björgunarsveiterinna Dagrenningar á Hólmavík.

Snjóbíll Björgunarsveitarinnar Dagrenningar á Hólmavík var í viðbragsstöðu.