26/04/2024

Menningarráð Vestfjarða auglýsir eftir umsóknum – frestur til 13. júní

skilaboda

Menningarráð Vestfjarða hefur nú auglýst eftir umsóknum um styrki á grundvelli menningarsamnings ríkisins við Fjórðungssamband Vestfirðinga og er frestur til að sækja um til og með föstudeginum 13. júní. Styrkir verða veittir í tveimur flokkum, annars vegar stofnkostnaðar- og rekstrarstyrkir til menningarstofnanna og hins vegar verkefnastyrkir til afmarkaðra menningarverkefna. Tilgangurinn er að efla menningarstarfsemi á Vestfjörðum og eru umsóknir og verkefni hverju sinni borin saman á samkeppnisgrundvelli við úthlutun. Umsækjendum er bent á að kynna sér vandlega úthlutunarreglur, en þær er að finna á vefsíðunni www.vestfirdir.is undir Menningarráð Vestfjarða -> Styrkir. Þar má einnig nálgast eyðublöð, bæði fyrir ritvinnslu og rafræn.

Allar nánari upplýsingar gefur Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða í síma 891-7372 eða í netfanginu menning@vestfirdir.is.