02/05/2024

Kvennakórinn Norðurljós syngur syðra


Kvennakórinn Norðurljós heldur tónleika í Guðríðarkirkju í Grafarholti laugardaginn 6. apríl næstkomandi og hefjast þeir klukkan 18.00. Hólmvíska söngdívan Heiða Ólafs kemur fram með kórnum og undirleikarar eru Kjartan Valdemarsson og Gunnlaugur Bjarnason og stjórnandi Sigríður Óladóttir. Miðaverð 2.000.- fyrir fullorðna og 1.000.- fyrir börn og er tekið við greiðslukortum. Vefurinn strandir.saudfjarsetur.is hvetur alla Strandamenn sem staddir verða syðra og aðra unnendur kórsöngs að mæta á tónleikana.