28/03/2024

Jólaglögg á Galdrasýningunni

Laugardaginn 22. desember kl. 17:00 gefst fólki frábært tækifæri til að taka sér frí frá jólaamstrinu, hittast og hafa það notalegt á Restaurant Galdri þar sem hægt verður að gæða sér á kynngimögnuðu jólaglöggi. Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur á Kirkjubóli startar fjörinu með stuttu og krassandi spjalli um óhugnanlegt mannát trölla um jólin.