20/04/2024

Hrútaþuklseinvígi Sigga Sigurjóns og Theódórs Júlíussonar

hrutar

Íslandsmót í hrútadómum verður haldið á Sauðfjársetrinu á Ströndum sunnudaginn 16. ágúst. Þar verður margt til skemmtunar og meðal annars munu aðalleikarar kvikmyndarinnar Hrútar heyja einvígi í hrútaþukli. Leiðin liggur þanig frá Cannes og norður á Strandir hjá stórleikurunum.

Hrútum þykir fátt skemmtilegra en að stangast á og því má vænta þess að baráttan verði hörð og ekkert gefið eftir. „Ég tapaði náttúrulega fyrir Tedda í myndinni, en það var auðvitað bara skáldskapur, hið sanna mun koma í ljós núna á sunnudaginn,“ segir Siggi Sigurjóns sigurviss. Jafnan er góð þátttaka í hrútadómunum, bæði í flokki þaulreyndra hrútadómara og líka í flokki óvanra hrútaþuklara.

Óhætt er að segja að félagarnir hafi öðlast töluverða reynslu í meðhöndlun hrúta við gerð myndarinnar. „Siggi á ekki séns, hann hefur bara ekki sömu næmni og ég. Það verður skemmtilegt að rúlla honum upp,“ segir Theodór. Keppnin hefst kl. 14 og að venju verður kjötsúpa á boðstólum og kaffihlaðborð allan liðlangan daginn, auk þess sem líflambahappdrætti er á dagskrá þar sem vinningar eru væn og vel gerð líflömb af Ströndum. Sauðfjársetrið er til húsa í Sævangi á Ströndum, 12 km sunnan við Hólmavík.