29/04/2024

Fundur um öryggi gagnaflutninga

DrangsnesÍ kvöld verður haldinn fundur um fjarskiptamál og gagnaflutningsöryggi á Vestfjörðum og hefst hann kl. 20.00 í stofu 1 í Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði og verður einnig hægt að sitja fundinn í fjarfundi í Grunnskólanum á Hólmavík og Þróunarsetrinu á Patreksfirði. Umræðuefni fundarins er staða gagnaflutnings á Vestfjörðum og leiðir til úrbóta. Markmiðið er að ná saman hugmyndum og samstöðu um leiðir til úrbóta í þessum hluta fjarskiptamála. Áætlað er að sú samantekt verði svo lögð fyrir Samgöngunefnd Fjórðungssambands Vestfirðinga sem vinni áfram með málið.

Það eru Vaxtarsamningur Vestfjarða, Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða og Fjórðungssamband Vestfirðinga sem standa fyrir fundinum. Björn Davíðsson verður með framsöguerindi.

Pallborðsumræður verða strax í kjölfar fundarins og í pallborði munu sitja:
Björn Davíðsson –  Snerpa
Hallgrímur Magnús Sigurjónsson – Glitni á Ísafirði
Svavar Guðmundsson – Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði
Lárus Valdimarsson – Netheimar
Valtýr Gíslason – Ísafjarðarbær

Fundurinn er opinn og ætlaður öllum þeim sem hafa atvinnu eða almennan áhuga á stöðu fjarskipta mála. Það er sérstaklega brýnt fyrir þá sem hafa mikla hagsmuni (stórnotendur) að gæta varðandi stöðu fjarskiptamála að koma á fundinn.