28/04/2024

Frumkvæði og sköpun – Þorsteinn J. á Hólmavík

IMG_7233
Þorsteinn J. Vilhjálmsson heldur fyrirlesturinn Frumkvæði og sköpun í Félagsheimilinu á Hólmavík fimmtudaginn 24. október 2013 kl. 17.00-20.00. Fyrirlesturinn er haldinn að frumkvæði leikskólans Lækarbrekku og eru öll sem áhuga hafa hvött til að nýta sér þetta tækifæri. Í fyrirlestrinum ræðir Þorsteinn J. um frumkvæði og leggur út frá spurningunum: Hvað get ég gert betur í mínum aðstæðum eins og þær eru? Hverju get ég breytt, hvað get ég lagt að mörkum?

„Frumkvæði er ekki bara eitthvert orð. Það er farsæl leið til að blómstra í starfi og hafa skapandi áhrif á umhverfi sitt, hverjar sem aðstæðurnar eru,“ segir Þorsteinn J. sem er fæddur í Reykjavík í mars 1964 og hefur starfað í fjölmiðlum, útvarpi og sjónvarpi um áratugaskeið. Hann hefur jafnframt haldið fjölda fyrirlestra um frumkvæði og skapandi hugsun síðan 2003.