01/05/2024

Frábærir tónleikar Ozon

Í vikunni voru haldnir stórglæsilegir tónleikar Félagsmiðstöðvarinnar Ozon á Hólmavík undir heitinu Tónaflóð. Þar kom fram fjöldi af tónlistarmönnum og söngstjörnum af yngri kynslóðinni, auk þess sem margir eldri skemmtikraftar tróðu upp með hljómsveitunum sem spiluðu og tóku vel valda slagara. Mikill fjöldi mætti á fjáröflunartónleikana sem fóru afar vel fram og voru bráðskemmtilegir. Hljómsveitirnar voru hver annarri betri og margir ungu tónlistarmennirnir sýndu að þeir höfðu tekið ótrúlegum framförum í vetur.

580-tonaflod9 580-tonaflod1 580-tonaflod10 580-tonaflod11 580-tonaflod8 580-tonaflod7 580-tonaflod6 580-tonaflod5 580-tonaflod4 580-tonaflod3 580-tonaflod2 580-tonaflod12

Tónaflóð á Hólmavík – ljósm. Ester Sigfúsdóttir