25/04/2024

Allir á þorrablót !!!

Þorramatinn bryðjum vérYfir helmingur þátttakenda í skoðanakönnun vikunnar hefur hugsað sér að að fara á Þorrablót á þessu ári og nærri fimmti hver maður ætlaði að skella sér á fleiri en eitt blót. Fimmti hver maður fer hins vegar aldrei á þorrablót ef eitthvað er að marka könnunina og rúm 4% fara ekki því þeir vilja ekki lenda í þorranefnd, en aðeins rúmlega hundraðasti hver maður ætlar ekki af því að hann borðar ekki matinn.

Svörin við spurningunni Ætlar þú á þorrablót? voru annars eftirfarandi: 
Já, eitt er passlegt
74   31.8%
 
Nei, fer aldrei
50   21.5%
 
Að sjálfsögðu, mörg
43   18.5%
 
Veit ekki, kannski
29   12.4%
 
Það er ólíklegt
24   10.3%
 
Nei, vil ekki lenda í nefnd
10   4.3%
 
Nei, borða ekki matinn
3   1.3%