Skáldið Steinn Steinarr fæddist að Laugalandi í Nauteyrarhreppi árið 1908 og verður þann 21. júní, kl. 15.00-18.00 dagskrá honum til heiðurs í Dalbæ á Snæfjallaströnd við Ísafjarðardjúp. Þórður Helgason rithöfundur fjallar um áhrif Steins á íslenskar bókmenntir. Ása Ketilsdóttir kvæðakona sem býr á fæðingarstað Steins mun segja nokkur orð um tengsl hans við svæðið og flytja nokkur kvæða hans. Þórarinn Magnússon mun kynna áform um stofnun Steinssafns á Nauteyri og söngdúett frá Hólmavík flytur nokkur ljóða Steins sem gerð hafa verið lög við.
Loks munu Elfar Logi Hannesson og Þröstur Jóhannesson flytja á vegum Kómedíuleikhússins leikþáttinn BÚLÚLALA – öldin hans Steins sem fjallar um skáldið með söngvum og gítarundirleik. Leikmynd gerði Marsibil G. Kristjánsdóttir.
Menningarráð Vestfjarða og Menningarsjóður félagsheimila styrktu þennan viðburð.