Tæp sextán tonn af fiski frá Fiskmarkaði Hólmavíkur voru seld í gegnum Fisknet, reiknistofu fiskmarkaða í gær. Aflinn var frá sex bátum og uppistaða hans var þorskur og ýsa. Hæsta verð fyrir kíló af þorski var 275 krónur og 234 krónur fékkst hæst fyrir ýsu.
Tegund | Kg |
Þorskur | 7.600 |
Þorskur undir | 920 |
Ýsa | 6.750 |
Ýsa undir | 480 |
Hlýri | 5 |
Samtals | 15.755 |