26/04/2024

Vefurinn strandir.saudfjarsetur.is fimm ára í dag

Í dag eru liðin fimm ár síðan vefurinn strandir.saudfjarsetur.is var opnaður formlega, þann 20. desember 2004, og var þá kynntur sem jólagjöf til allra Strandamanna nær og fjær. Á þessum tíma hafa fjölmargar og fjölbreytilegar fréttir og greinar verið settar inn á vefinn og margir lagt honum lið með því að senda myndir og efni. Vefurinn er í eigu Sögusmiðjunnar og Jón Jónsson á Kirkjubóli hefur ritstýrt honum frá upphafi. Með Jóni í ritstjórn eru Sigurður Atlason og Arnar S. Jónsson. Hátíðahöld vegna afmælisins eru hófstillt að venju. Í frétt um formlega opnun vefjarins frá 20. desember 2004 segir:

"Stefnan er að skapa skemmtilegan og spennandi fréttavef fyrir svæðið sem verður notaður sem allra víðast. Vefritið hefur sérstakan áhuga á atvinnulífi, framkvæmdum og framförum á Ströndum, eflingu byggðar og skemmtilegu mannlífi í héraðinu. Öllu því sem gerir það sérstakt og jákvætt að lifa og starfa á Ströndum eða heimsækja héraðið sem ferðamaður."