02/05/2024

Út að leika?


Námskeiðið Viltu koma út að leika? verður haldið á Hólmavík í sumar fyrir börn á aldrinum 6-13 ára, en frá þessu er sagt á vef Strandabyggðar. Námskeiðið verður virka daga á tímabilinu 9.-20. júlí og fer að öllu leyti fram utandyra. Systurnar Árný Huld og Guðmundína Arndís Haraldsdætur hafa hannað námskeiðið og verða leiðbeinendur. Áhersla er lögð á skynfæri og hreyfigetu, útileiki, þrautir, sögur og ævintýri. Skipt verður í tvo hópa, 6-10 ára og 11-13 ára og mun yngri hópurinn mæta kl. 10:00-12:00 og eldri hópurinn kl. 13:00-15:00.

Verð fyrir námskeiðið er kr. 10.000.- á barn, en systkinaafsláttur er veittur þannig að kostnaður er 7.500 kr. fyrir annað barn, 5.000 kr. fyrir þriðja og fjórða barn. Skráning fer fram hjá Árnýju í netfangið arnyhuld@hotmail.com eða í síma 848 4090. Fólk er beðið um að skrá börn sín til leiks í síðasta lagi sunnudaginn 1. júlí. Ef lágmarksfjöldi þátttakenda næst ekki fellur námskeiðið niður.

Auglýsingu og tímatöflu má nálgast með því að smella hér.