29/04/2024

Umhverfisvottaðir Vestfirðir – Ráðstefna á Núpi 17. apríl

Ferðamálasamtök Vestfjarða standa fyrir metnaðarfullri ráðstefnu
undir yfirskriftinni Umhverfisvottaðir Vestfirðir laugardaginn 17. apríl næstkomandi.
Ráðstefnan verður haldin í tengslum við aðalfund samtakanna á Hótel Núpi í
Dýrafirði og hefst hún kl. 11:00. Ráðstefnan er öllum opin, en meðal framsögumanna
verður Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra.


 
Ferðamálasamtök
Vestfjarða hafa unnið að stefnumótun vestfirskrar ferðaþjónustu
undanfarna
mánuði og haldið fundi um allan fjórðunginn. Mjög mikil þátttaka var á
fundunum,
en vel yfir 100 manns tóku þátt í umræðum um framtíð vestfirskrar
ferðaþjónustu
og þar með samfélagsins á Vestfjörðum. Á fundunum kom fram að
umhverfismál
brenna sérstaklega á Vestfirðingum og skýr krafa var uppi um að tekin
yrði
umræða um hvers kyns umhverfismál sem varða fjórðunginn.
 
Í beinu
framhaldi af stefnumótunarfundunum ákvað stjórn Ferðamálasamtaka
Vestfjarða að
hefja strax undirbúning ráðstefnu um kosti þess að stefna að
umhverfisvottun
Vestfjarða. Tekið var upp samstarf við Náttúrustofu Vesturlands í
Stykkishólmi
við undirbúning ráðstefnunnar, en starfsmenn stofunnar hafa lagt fram
tillögur
um að Ísland verði fyrsta umhverfisvottaða landið í heiminum. Verkefnið
er þegar
komið vel af stað á Snæfellsnesi.
 
Á ráðstefnunni
Umhverfisvottaðir
Vestfirðir verða haldin fjölbreytt erindi. Rætt verður um stöðu
umhverfismála á
Íslandi og hvaða aðgerða sé hægt að grípa til, auk þess sem þessi mál
verða sett
í hnattrænt samhengi. Fjallað verður um almennt viðhorf til náttúrunnar
og
sagðar reynslusögur af vottun einstakra fyrirtækja, með áherslu á
mikilvægi
vottunar fyrir markaðsstarf og daglegan rekstur. Loks verður sagt frá
sérstökum
verkefnum, svo sem hugmyndum um rafbílavæðingu Íslands.
 
Á
ráðstefnunni
munu fulltrúar Náttúrustofu Vesturlands fjalla sérstaklega um
hugmyndafræðina á
bak við verkefnið Umhverfisvottað Ísland. Meðal fyrirlesara verður
einnig Leo
Christensen, atvinnumálafulltrúi Lolland kommune í Danmörku. Leo mun
segja frá
þeim aðgerðum sem stjórnvöld á Lálandi gripu til fyrir rúmum áratug
þegar ástand
í atvinnumálum þar var orðið nánast óbærilegt og þeim jákvæðu áhrifum
sem þessi
nýja stefna hefur haft fyrir íbúa og atvinnulíf eyjarinnar. Þá er
ótalinn fjöldi
annarra fræðimanna og sérfræðinga sem hafa látið umhverfismál til sín
taka og
munu miðla ráðstefnugestum af mikilli reynslu sinni á því
sviði.
 
Ferðamálasamtök Vestfjarða stefna að því að fylgja
ráðstefnunni
eftir í samvinnu við Fjórðungssamband Vestfirðinga. Markmiðið er að
umhverfisvottun Vestfjarða komist á dagskrá Fjórðungssambandsins og að
vestfirsk
sveitarfélög sameinist um að stefna að slíkri vottun.
 
Ráðstefnan
á Núpi
er öllum opin sem fyrr segir. Ekki verður rukkað þátttökugjald, en
ráðstefnugestum er bent á að hafa samband við Hótel Núp til að panta sér
mat og
gistingu ef á þarf að halda. Dagskrá ráðstefnunnar er aðgengileg á
síðunni vestfirskferdamal.is/skraarsafn/skra/53.