28/04/2024

Umferð með rólegra móti á Vestfjörðum

Í tilkynningu lögreglunnar á Vestfjörðum kemur fram að umferð með rólegra móti í umdæmi lögreglunnar í síðustu viku. Einn ökumaður var stöðvaður vegna hraðaksturs, innanbæjar á Ísafirði og tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu. Þá eru vegfarendur minntir á að búast má við kindum, lömbum og öðru ungviði við veginn á þessum árstíma og hvetur lögregla vegfarendur til að taka tillit til þess. Á fimmtudag lenti bifhjól út fyrir veg á Barðastrandarvegi við Birkimel, ökumaður missti stjórn á hjólinu í lausamöl og var fluttur með sjúkrabíl á Heilsugæslustöðina á Patreksfirði til skoðunar og í framhaldi með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Hann reyndist, sem betur fer, minna slasaður en haldið var í fyrstu.

Á laugardaginn var tilkynnt um umferðaróhapp á þjóðveginum um Holtavörðuheiði, þar hafnaði bifreið út fyrir veg. Ökumaður og farþegi voru fluttir með sjúkrabíl til móts við þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem flutti viðkomandi til Reykjavíkur til skoðunar. 

Hátíðarhöld og skemmtanahald vegna sjómannadagsins fóru vel fram í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum. Á Patreksfirði byrjuðu hátíðahöldin á fimmtudag með dagskrá sem stóð fram á sunnudagskvöld. Á sama tíma var haldin íþróttakeppni, svokallaðir Hálandaleikar með fjölda þátttakanda, bæði erlendum og íslenskum. Um þessa helgi var talið að íbúafjöldi hafi að minnsta kosti tvöfaldast og fór hátíðin og skemmtanahald fram með besta móti. Einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um ölvun við akstur um helgina á Patreksfirði.