28/04/2024

Tjaldið frumsýnt á fimmtudaginn

600-tjaldid1
Leikritið Tjaldið eftir Hallgrím Helgason verður frumsýnt fimmtudaginn 21. mars kl. 20:00 í Félagsheimilinu á Hólmavík. Hópur ungmenna í leiklistarvali við Grunnskólann á Hólmavík hefur æft leikritið í vetur undir stjórn Arnars S. Jónssonar. Aðstoðarleikstjórar eru Margrét Vera Mánadóttir og Elísa Mjöll Sigurðardóttir. Gróft orðbragð og atriði koma fyrir í sýningunni og því er ekki sérstaklega mælt með því fyrir 12 ára og yngri. Miðaverð fyrir alla aldurshópa er kr. 1.500. Takmarkað sætaframboð er í boði á hverja sýningu, en miðapantanir eru í s. 894-1941 (fyrir kl. 14:00) og s. 776-6885 (eftir kl. 14:00).

Tjaldið er nýtt íslenskt leikrit sem er samið sérstaklega fyrir verkefnið Þjóðleik sem er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og ungra leikhópa á landsbyggðinni. Leikritið fjallar um unga stúlku sem er nauðgað á útihátíð og atburðarrás sem fer af stað í kjölfarið. Strandamenn taka nú þátt í Þjóðleik í fyrsta skipti.

Fleiri sýningar eru fyrirhugaðar á verkinu, en þær verða auglýstar síðar. Meðfylgjandi mynd tók Margrét Vera Mánadóttir á æfingu.