27/04/2024

Tillögur um framfaraverkefni í Sóknaráætlun

320-fjord20Á Fjórðungsþingi Vestfirðinga í Bolungarvík um síðustu helgi var fjallað um hvaða verkefni skyldi nefna sem mikilvæg framfaraskref sem taka þyrfti strax á næsta ári með stuðning ríkisvaldsins, í tengslum við Sóknaráætlun Vestfjarða. Sú áætlun er hluti af verkefni ríkisstjórnarinnar sem kallast Ísland 20/20. Fjármálaráðuneyti hafði sent tilmæli um að hver landshlutasamtök nefndu 5-7 verkefni sem leiddu til sóknar og framfara. Á þinginu var kosið á milli verkefna og þeim raðað í forgangsröð, en áður hafði farið fram forval í samvinnu við sveitarfélög og hagsmunaaðila á Vestfjörðum.

Niðurstaða þingsins var að verkefnunum skuli raðað í eftirfarandi forgangsröð:

1. Sókn í samgöngum Vestfjarða
2. Auðlindasjóður
3. Virkjun í Hvalá
4. Framhaldsskóladeild á Hólmavík
5. Umhverfisvottun Vestfjarða
6. Háskóli hafsins
7. Efling heilbrigðisstofnunarinnar á Patreksfirði

Verður þessum verkefnum skilað inn til fjármálaráðuneytisinsnæstkomandi föstudag sem tillögum um sérstök framfaraverkefni sem koma þurfi á fjárlög 2012 í tengslum við Sóknaráætlun Vestfjarða. Engin trygging er þó fyrir að einstök mál komist til framkvæmda.