18/04/2024

Þakið lyftist í stormhviðum

Kaupfélagshúsið í Norðurfirði - ljósm. Jón G G.Í rokinu og í miklum vindhviðum mánudagskvöldið þann 24. þessa mánaðar varð vart við að þak lyftist á einni íbúð Kaupfélagshúsanna í Norðurfirði, sem reyndar var mannlaus. Í roki og ofsaveðri sem gekk þá yfir um kvöldið og fram á nótt komst vindur undir þakið og losaði það upp öðru megin. Þakið lyftist bara en ekkert fauk sem betur fer.

Að sögn Gunnsteins Gíslasonar oddvita Árneshrepps voru fengnir menn í dag til að reyna að festa þakinu niður með löngum nöglum til bráðabirgða. Þetta er talsvert tjón þótt þakið hafi ekki fokið af, því framundan er að skipta um allar undirstöður og laga til frambúðar segir Gunnsteinn. Þessi hús sem kölluð eru Kaupfélagshús eru nú í eigu Árneshrepps.

Á veðurstöðinni í Litlu-Ávík var rok þetta kvöld eða 27 m/s og vindhviður fóru oft í og yfir 36 m/s eða 12 vindstig sem er fárviðri. Veðurathugunarmaðurinn í Litlu-Ávík vill benda á að vindhviður standa ekki oft yfir nema um eina mínútu eða upp í tvær, en vindhviður sem gefnar eru upp á veðurstöð verða að standa styst yfir um eina mínútu og var það æði oft þetta kvöld. Einnig er búið að vera hvassviðri oft undanfarna daga.