28/04/2024

Sviðaveisla í Sævangi á laugardag

645-svidav10

Árleg sviðaveisla verður haldin í Sauðfjársetrinu á Ströndum í Sævangi laugardaginn 22. október. Á boðstólum verða heit svið, reykt og söltuð, heitar sviðalappir og sviðasulta. Blóðgrautur, rabarbaragrautur og frómas eru síðan í eftirrétt. Skemmtiatriði, söngur og sprell verða einnig á dagskránni og ef að líkum lætur verður spilað bingó! Veislustjóri verður hinn síkáti Bakkabóndi, Árný Huld Haraldsdóttir og ræðumaður kvöldsins verður María Játvarðardóttir. Þá munu Lára Guðrún Agnarsdóttir og Kristján Sigurðsson sjá um tónlistaratriði og fjöldasöng.

Enn eru laus sæti, miðaverð er kr. 4.800 – Panta þarf miða í s. 693-3474 (Ester) í skilaboðum á fésbók eða saudfjarsetur@strandir.saudfjarsetur.is. Húsið opnar kl. 19:00, borðhald hefst kl. 20:00.