02/05/2024

Sundmótið fellur niður

 Sundmótinu sem vera átti í Grettislaug á Reykhólum nú síðar í dag hefur verið aflýst vegna ónógrar þátttöku. Ekki hefur verið ákveðin önnur dagsetning fyrir mótið, en líklegt er að reynt verði að halda annað mót um næsta vor. Þetta kom fram á vef HSS, www.123.is/hss.