02/05/2024

Styrkir til að markaðssetja viðburði


Markaðsdeild Fjórðungssambands Vestfirðinga auglýsir eftir styrkumsóknum frá hátíðum og viðburðum á Vestfjörðum árið 2013. Styrkirnir eru fjármagnaðir úr Sóknaráætlun landshluta og er ætlað að vekja athygli á þeim hátíðum og viðburðum sem þegar eru haldnar á Vestfjörðum og styðja við ímynd Vestfjarða.  Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2013. Allar nánari upplýsingar gefur Díana Jóhannsdóttir markaðsfulltrúi Markaðsstofu Vestfjarða í síma 450-3002 eða í netfanginu diana@vestfirdir.is og eyðublað má nálgast á www.vestfirdir.is.  

Við úthlutun styrkja fyrir 2013 verður sérstaklega horft til eftirfarandi þátta:

# Dregur að ferðamenn utan háanna tíma og/eða lengir ferðamannatímabilið
# Stærð viðburðar/hátíðar
# Aldur viðburðar/hátíðar
# Svæðisbundin áhrif viðburðar/hátíðar
# Efnahagslegt vægi viðburðar/hátíðar
# Samfélagslegt vægi viðburðar/hátíðar