26/04/2024

Strandamaður ársins 2011 valinn

Vefurinn strandir.saudfjarsetur.is hefur nú ákveðið að standa fyrir kosningu á Strandamanni ársins áttunda árið í röð. Tilgangurinn með því er að vekja fólk til umhugsunar um allt það sem vel er gert í samfélaginu og þá sem standa sig með prýði. Hægt verður að senda inn tilnefningar fram að miðnætti sunnudaginn 8. janúar. Undir þessum tengli má velja Strandamann ársins 2011 og hann má líka nálgast í gegnum auglýsingu á vefnum eða tengil efst vinstra megin! Þar tilgreina þeir sem þátt taka hver fær þeirra atkvæði og hvers vegna. Allir Strandamenn nær og fjær eru hvattir til að taka þátt, en í síðari umferð verður valið á milli þeirra þriggja sem flestar tilnefningar fá.

Strandamaður ársins hefur verið valinn sjö sinnum á vefnum strandir.saudfjarsetur.is, en fyrsta árið var valið unnið í samvinnu við fréttablaðið Fréttirnar til fólksins og árin 2008 og 2009 í samvinnu við Gagnveg. Kristín S. Einarsdóttir átti hugmyndina að þessum skemmilega leik. 

Þeir sem hafa orðið þess heiðurs aðnjótandi að vera valdir Strandamenn ársins af samferðamönnum sínum eru:

2004 – Sverrir Guðbrandsson eldri á Hólmavík
2005 – Guðbrandur Einarsson frá Broddanesi
2006 – Sandra Dögg Guðmundsdóttir á Drangsnesi
2007 – Ásbjörn Magnússon og Valgerður Magnúsdóttir á Drangsnesi 
2008 – Ingibjörg Sigvaldadóttir frá Svanshóli
2009 – Sigurður Atlason á Hólmavík  
2010 – Arinbjörn Bernharðsson frá Norðurfirði