29/04/2024

Strandagangan og skíðaleikjahátíð framundan

580-skemmtiferd-skidi

20. Strandagangan verður haldin í Selárdal laugardaginn 15. mars 2014 og stendur Skíðafélag Strandamanna fyrir viðburðinum sem er hluti af Íslandsgöngunum. Vegalengdir eru frá 1 km til 20 km og er veðurspáin fyrir helgina ágætt og líkur á góðri þátttöku. Gangan hefur verið haldin árlega frá snjóavetrinum 1995 þegar fyrsta Strandagangan var haldin á Hólmavík. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu göngunnar strandagangan.123.is.

Sunnudaginn 16. mars kl. 10-12 verður svo haldin Skíðaleikjahátíð í Selárdal. Þá verður keppni lögð til hliðar og farið í skemmtilegustu skíðaleikina t.d. stórfiskaleik, hákarlaleik og leigubílaleikinn auk þess sem gerðar verða hólabrautir og þrautabrautir niður brekkur. Ef þátttaka verður góð verður skipt í hópa eftir aldri.  Eftir skíðaleikjahátíðina eða kl. 12.30 býður þátttakenda pizzahlaðborð á Café Riis á Hólmavík fyrir 1.200 kr. Skráningar á skíðaleikjahátíðina skal senda á netfangið allaoskars@gmail.com í síðasta lagi á föstudagskvöldið 14. mars.