28/03/2024

Mikilvægt að halda Vestfjörðum á lofti

Frá BryggjuhátíðJón Páll Hreinsson framkvæmdastjóri Markaðsstofu Vestfjarða minnir á að nú er sá tími sem erlendar ferðaskrifstofur eru að taka við bókunum frá sínum viðskiptavinum í ferðir til Íslands næsta sumar. Þær fréttir sem berast frá ferðaþjónum eru að bókanir ganga misvel, sumstaðar vel, en annarsstaðar fara bókanir hægar af stað en oft áður. Því er mikilvægt að halda Vestfjörðum á lofti í samskiptum við erlendar ferðaskrifstofur og hvetur Markaðsstofan aðila til að nýta sambönd sín til þess að minna á sjálfa sig og Vestfirði í leiðinni.

Markaðsstofan getur skaffað ókeypis ljósmyndir af Vestfjörðum og aðstoðað við að finna kynningarefni fyrir ferðaskrifstofur. Skipulagning á kynningarferðum til Vestfjarða eru jafnframt áhugaverður kostur fyrir ferðaskrifstofur sem vilja kynna sér Vestfirði sérstaklega með frekari viðskipti í huga. Einnig kemur fram að mikilvægt sé að senda jákvæð skilaboð út á markaðinn, að upplýsa um að á Vestfjörðum séu allir hressir og allt komi til með að virka og vera í gangi í sumar eins og venjulega.

Markaðsstofa Vestfjarða er reglulega í sambandi við fjölda ferðaskrifstofa erlendis til að bjóða þjónustu sína og biðja um gott veður fyrir Vestfirði.