26/04/2024

Söngkeppni Ozon frestað til fimmtudags

 Söngkeppni Félagsmiðstöðvarinnar Ozon sem vera átti í kvöld, þriðjudagskvöldið 10. janúar, hefur verið frestað til fimmtudags 12. janúar. Ástæðan er leiðindaveður sem nú geysar á Ströndum og um landið allt, en víða er þungfært eða ófært bæði vegna veðurs og snjóalaga. Einnig fellur niður opið hús hjá eldri deild Félagsmiðstöðvarinnar. Keppnin á fimmtudag fer fram á sama stað og áður var auglýst, í Grunnskólanum á Hólmavík, og hefst kl. 20:00. Allir áhugasamir eru hjartanlega velkomnir!