27/04/2024

Sögurölt á Tungustapa í Sælingsdal

Söguröltið í Dölum og á Ströndum heldur áfram og þriðjudaginn 24. júlí kl. 19:30 verður gengið á Tungustapa í Hvammssveit í Dölum. Lagt verður af stað frá íþróttavelli UDN í Sælingsdal, á leiðinni að Laugum í Sælingsdal. Af Tungustapa er útsýni yfir sögusvið sagna frá landnámi til þessa dags, bæði manna og álfa. Tungustapi er álfadómkirkja og víðar álfabyggðir í nágrenninu. Síðan verður bara að koma í ljós hvað verður fyrir valinu að segja frá þegar á staðinn er komið; þjóðsögur, Laxdæla, Sturlunga, menn og búalið í dalnum, skáldagyðjan eða bara eitthvað allt annað.

Sælingsdalslaug er opin til kl. 20 fyrir þá sem vilja nýta ferðina til sunds fyrir röltið. Og þeir sem ekki hafa fengið nægju sína af hreyfingu að lokinni göngu á Tungustapa er hægt að velja um fjölda mislangra gönguleiða í nágrenninu, merktra og ómerktra.

Söguröltin eru haldin í samvinnu Strandamanna og Dalamanna, og standa Byggðasafn Dalamanna, Sauðfjársetur á Ströndum og Náttúrubarnaskólinn fyrir þeim. Góð mæting hefur verið í söguröltin í sumar og hafa samtals um 160 manns mætt í þær fjórar gönguferðir sem eru að baki.