29/04/2024

GÓSS tónleikar í Laugarhóli í Bjarnarfirði

Tveir af ástsælustu söngvurum landsins, Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson, ætla annað sumarið í röð að leggja land undir fót og koma fram á tónleikum víðsvegar um land undir nafninu GÓSS. Með í för verður Guðmundur Óskar, bróðir Sigurðar og meðleikari Sigríðar. Sunnudagskvöldið 22. júlí kíkir GÓSSið í Bjarnarfjörð á Ströndum og heldur tónleika á Hótel Laugarhóli sem hefjast kl. 21. Þessa einstöku og innilegu kvöldstund má enginn tónlistarunnandi láta framhjá sér fara. Sigríði Thorlacius og Sigurð Guðmundsson þarf vart að kynna, þau hafa lengi verið á meðal dáðustu söngvara landsins. Bæði hafa þau gert garðinn frægan með hljómsveitum sínum, Sigríður með Hjaltalín og Sigurður með Hjálmum, en jafnframt státa þau af glæstum sólóferli.

Boðið verður upp á létt og skemmtilegt prógramm sem inniheldur lög sem Sigríður og Sigurður hafa sungið saman og í sitthvoru lagi í gegnum tíðina, bæði tökulög og frumsamin. Miðasala fer fram í gegnum: tix.is/goss