29/04/2024

Skjaldbökuhátíð á Hólmavík

320-einar-og-skjalda
Þann 1. október síðastliðin voru 50 ár liðin síðan Einar Hansen dró risaskjaldböku að landi á Hólmavík. Af því tilefni verður haldið upp á ártíð skjaldbökunnar og þetta merkilega afrek í Hnyðju á Hólmavík nú á laugardag. Hátíðin er í boði Strandabyggðar og hefst klukkan 17:00 laugardaginn 12. október. Boðið verður upp á skjaldbökuköku að hætti Guðrúnar Margrétar Jökulsdóttur, sigurvegara í Hamingjukökukeppninni 2013. Jón Jónsson þjóðfræðingur segir nokkur orð um viðburðinn, afkomendur Einars verða á staðnum og skjaldbakan sjálf verður til sýnis. Auk þess verður kynnt hver sigrar í hugmyndasamkeppni um minjagrip í tengslum við skjaldbökuævintýrið. Allir eru velkomnir.