29/03/2024

Skíðagöngumót á morgun

Frá skíðamóti fyrr í veturSparisjóðsmót í skíðagöngu verður haldið upp á Steingrímsfjarðarheiði
laugardaginn 12. mars 2005 og hefst það kl. 14.00. Gengið er með frjálsri aðferð. Mótið er öllum opið og fer skráning fram á staðnum. Eftir göngu verða seldar veitingar. Skíðafélag Strandamanna stendur fyrir mótshaldinu.

Keppt er í eftirfarandi flokkum og vegalengdum:

  • Strákar 6 ára og yngri 1 km 
  • Stelpur 6 ára og yngri 1 km
  • Strákar 7-8 ára 1 km
  • Stelpur 7-8 ára 1 km
  • Strákar 9-10 ára 2,5 km
  • Stelpur 9-10 ára 2,5 km
  • Strákar 11-12 ára 2,5 km
  • Stelpur 11-12 ára 2,5 km
  • Strákar 13-16 ára 5 km
  • Stelpur 13-16 ára 5 km
  • Konur 17-34 ára, 35-49 ára og 50 ára og eldri 5 km
  • Karlar 17-34 ára, 35-49 ára og 50 ára og eldri 10 km